
Ég fæddist árið 1969 í Reykjavík en flutti norður í sveit með mömmu minni sem fór til að gerast kaupakona og sjá okkur farborða. Pabbi Óli var ekki mikið inni í myndinni enda hann í Reykjavík og í þá daga var svolítið meira mál að ferðast alla þessa leið. Mamma kynntist svo bónda í sveitinni og gekk hann mér í föðurstað.
Ég átti hamingjuríka æsku í sveitinni, elskaði dýrin okkar og talaði við sum þeirra enda var ég viss um að þau skildu mig. Ég fór að veiða í ánni og stalst í fljótið með systur minni, lék mér í heyinu, rakaði dreifar þegar ég neyddist til og tók á móti lömbum á vorin. Ég faldi mig milli leiðanna í kirkjugarðinum og þóttist vera draugur og fór í gönguferðir niður í Staðarbakka og upp í fjall að Grásteini.
Ég fór í framhaldsnám á Akureyri, í MA og Myndlistarskólann og hélt þaðan í nám til Ítalíu til að læra tískuhönnun og stefndi á framhaldsnám í Róm en í millitíðinni kynntist ég barnsföður mínum og plönin breyttust.
Ég lærði grafíska hönnun og útskrifaðist árið 2006 og fór að vinna við það í Ásprent og síðar á auglýsingastofunni Stíl.
Ég hafði alltaf haft gaman af að skrifa og hélt dagbækur og fór að skrifa einhverja texta sem smátt og smátt breyttust í ljóð og gullkorn. Skrifin nýtti ég sem leið til að vinna úr áföllum liðinna ára.
Það var síðan einn dag sem ég ákvað að gefa út tækifæriskort með nokkrum af ljóðunum mínum og hélt í söluferð sem varð ferð til fjár og nú áratug síðar eru kortin mín enn í sölu auk fjölda vara sem hafa bæst við síðar á leiðinni.
Skrifin mín hjálpuðu mér á þessari leið og nú vona ég innilega að þau komi til með styðja aðra, því stofnaði ég fyrirtækið mitt Hjartalag. Með Hjartalagi á ég mér markmið en það er að breiða út hlýju, kærleika og alúð með ljóðum, gullkornum og jákvæðum boðskap. Tilgangurinn er að efla samstöðu, jákvæðni og uppbyggingu í samfélaginu.
Frá 2019 hef ég verið meira og meira að snúa mér að andlegum málefnum og um leið að vinna meira í sjálfri mér. Ég lærði markþjálfun og lauk framhaldsnámi í því, fór svo í Dáleiðsluskóla Íslands og lauk framhaldsnámi í klínískri dáleiðslu og hugrænni endurforritun. Ég lærði líka Reiki I & II, Reikimeistarann, heilun og tarotlestur. Og síðan fór ég að læra dáleiðsluaðferð QHHT hjá Dolores og Julia Cannon sem er mögnuð aðferð. Sl. ár hef ég svo verið á ýmsum námskeiðum í The Arthur Findley College, miðlun, orku, trans, leiklist og fleira skemmtilegt og er hvergi nærri hætt :)
Í febrúar 2026 tók ég ákvörðun að byrja að mála akrýlmyndir og keypti það sem mig vantaði og svo bara byrjaði ég. Fljótlega bókaði ég sýningarsal og hélt mína fyrstu sýningu með 32 verkum 17.-19. júlí 2026. Ég nefndi sýninguna „Allt frá englum í abstrakt“ enda margskonar stýlar og aðferðir sem ég prófaði.
Næsta sýning er áætluð í okt-nóv á bókasafni HA á Akureyri